Þátttökumet í Sparisjóðs-liðakeppninni
Nýtt fjöldamet hefur litið dagsins ljós í liðakeppninni en alls eru 110 hross skráð til leiks í Sparisjóðsliðakeppninni sem fram fer í Þytsheimum á Hvammstanga í kvöld. Það má því búast við spennandi og skemmtilegri keppni.
Mótið hefst því stundvíslega kl. 17.00, aðgangseyrir er 1.000, frítt fyrir 12 ára og yngri. Prógrammið er hægt tölt, fegurðartölt, fet, brokk og stökk í forkeppni og er riðið þannig að skiptingar eiga að fara fram á miðri skammhlið, þulur minnir unglinga á næstu gangtegund en ekki keppendur í 1., 2. og 3. flokk.
Dagskrá:
- Forkeppni:
- Unglingaflokkur
- 3. flokkur
- hlé
- 2. flokkur
- 1.flokkur
- Hlé
- Úrslit:
- B - úrslit í 2. flokki
- B - úrslit í 1. flokki
- Unglingaflokkur
- A - úrslit í 3. flokki
- A - úrslit í 2. flokki
- A - úrslit í 1. flokki
Ráslistana má nálgast HÉR