Þátttökuskráning á Íþróttamóti Þyts lýkur nk. þriðjudag

Íþróttamót Þyts verður haldið laugardaginn 26. maí nk. Skráning til þátttöku stendur yfir til miðnættis þriðjudaginn 22. maí. Á heimasíðu hestamannafélagsins segir að mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður greinar ef þátttaka er ekki næg, þær eru eftirfarandi:

Greinar:
4-gangur og tölt 1.flokkur
4-gangur og tölt 2.flokkur
4-gangur og tölt ungmennaflokkur
4-gangur og tölt unglingaflokkur
4-gangur og tölt barnaflokkur
5-gangur 1.flokkur

Tölt T2 1.flokkur
gæðingaskeið
100 metra skeið

Fleiri fréttir