Þeir eru komnir í úrslitin!
Sá stórmerkilegi atburður varð í gær er íslenska U20 landslið karla sigraði Grikki í undanúrslitum í B-deild Evrópumóts landsliða U20, í Grikklandi. Og þar með er liðið komið í úrslit.
Leikurinn var æsispennandi og endaði með þriggja stiga mun, 70-67. Liðið hefur þannig bæði tryggt sér leik í úrslitum og þátttökurétt í A-deild Evrópumótsins að ári.
Líkt og áður hefur komið fram í fréttum Feykis eru tveir Skagfirðingar í liðinu, þeir Pétur Rúnar Birgisson og Viðar Ágústsson. Komu félagarnir talsvert við sögu í leiknum en Pétur Rúnar lék í 28 mínútur í leiknum og skoraði á þeim tíma 10 stig og greip 4 fráköst. Þá stal hann einum bolta. Viðar lék í tæpar 20 mínútur og tók 5 fráköst og stal boltanum einu sinni. Nánar má lesa um leikinn hér.
Þetta unga og bráðefnilega landslið mætir Svartfjallalandi í úrslitaleik mótsins í dag og ljóst að Skagfirðingar sem og landsmenn allir hljóti að senda eitt gott húh! út í kosmóið til styrktar strákunum okkar.