Thelma Sif hlaut viðurkenningu fyrir afburða árangur á sveinsprófi

Snyrtifræðingurinn Thelma Sif Magnúsdóttir á Sauðárkróki hlaut á dögunum sérstaka viðurkenningu frá Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík. Viðurkenningin er árlega veitt þeim sem ljúka sveinsprófi með afburða árangri. Tuttugu nýsveinar úr þrettán greinum fá verðlaunin ár hvert en Thelma var eini snyrtifræðingurinn sem hlaut verðlaun í ár.

Afhendingin fór fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 1. febrúar að viðstöddu fjölmenni, m.a. forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðherra, iðnaðarráðherra og borgarstjóranum í Reykjavík.

Í samtali við Thelmu á vefnum pjatt.is kemur fram að hún lærði í Snyrtiakademíunni og fór eftir það á samning hjá Ernu Gísladóttur á snyrtistofunni Garðatorgi, þar sem hún segist hafa notið handleiðslu frábærra snyrtifræðinga sem leiðbeindu henni vel. „Á snyrtistofunni Garðatorgi er alltaf að mikið að gera og því hlaut ég mikla og góða reynslu af fjölbreytninni sem stofan býður uppá.“ Í maí 2013 fór Thelma því mjög vel undirbúin í sveinsprófið en því lauk hún með afburða árangri.

Einnig hlaut Erna Gísladóttir, meistari og eigandi Snyrtistofunnar á Garðatorgi sérstaka viðurkenningu, en meisturum nýsveinana er jafnframt veitt viðurkenning fyrir faglega leiðsögn iðnsveinsins á samningstíma.

Í dag á Thelma og rekur snyrtistofuna Sif á Sauðárkróki en hana opnaði hún í september síðastliðnum. „Ég get þakkað Ernu og stelpunum á snyrtistofunni Garðatorgi fyrir alla hvatninguna og aðstoðina við opnunina en Erna og tveir aðrir snyrtifræðingar, Steinunn og Erla, komu norður til að vera með mér á opnuninni.

Snyrtistofan gengur vel og hefur fengið mjög góðar móttökur. Að fordæmi snyrtistofunnar á Garðatorgi hef ég boðið uppá fjölbreyttar meðferðir og komið með ýmsar nýungar á Sauðárkrók. Þetta hefur gefist mjög vel enda er alltaf nóg að gera,“ segir Thelma Sif í samtali við pjatt.is.

Fleiri fréttir