„Þetta eru skaðræðisdýr“

Mynd: Garðar Páll Jónsson
Mynd: Garðar Páll Jónsson

Eins og fram kom í aðsendri grein Garðars Páls Jónssonar á Feyki.is á dögunum hefur dýrbítur undanfarið valdið miklu tjóni á búfénaði í Viðvíkursveit. Að minnsta kosti fimm lömb hafa orðið dýrbítnum að bráð í sveitinni á þessu hausti.

Atli Már Traustason, bóndi í Syðri-Hofdölum, sagðist í samtali við Feyki í síðustu viku hafa misst eitt lamb í haust vegna þessa. „Þeir skutu svo dýr þar á túninu og síðan hefur ekkert borið á þessu, það er spurning hvort þetta hefur verið það kvikindi,“ sagði Atli en bætti því við að hræið af lambinu hefði verið sett út og étið upp á einni nóttu svo það væru greinilega fleiri dýrbítar á ferðinni.

Atli segir að tjón af völdum dýrbíts beri bændur alfarið sjálfir. Sem kunnugt er dugar sá kostnaður sem sveitarfélögin áætla í refa- og minkaveiðar hvergi nærri til að halda honum í skefjum. „Það er virðingarvert að þessir strákar sem eru í þessu eru að gera þetta fyrir nánast ekki neitt.“ Atli benti ennfremur á að tjónið væri ekki bara á lömbum: „Þetta hámar í sig rjúpur, mófugla og egg, við sjáum þetta mikið hjá okkur á vorin þegar þeir koma niður að vötnunum og hreinsa upp úr hreiðrunum, þetta eru skaðræðisdýr.“ 

Fleiri fréttir