"Þetta verður ævintýri líkast"
Gæran tónlistarhátíð verður haldin í sjötta sinn dagana 13.-15. ágúst næstkomandi. "Þetta verður stórkostleg helgi og ég er búinn að leggja inn pöntun fyrir góðu veðri. Við viljum vinna þetta með bænum; bæjarbúum og fyrirtækjum í bænum. Að gera þetta að fastri bæjarhátíð þar sem fólk kemur í bæinn.Ég tók þetta verkefni að mér til að gera eitthvað fyrir bæjarbúa, skilja eitthvað eftir í bæjarfélaginu og þakka fyrir mig. Þó ég sé fluttur í burtu."
Þetta segir Adam Smári Hermannsson í opnunarviðtali Feykis þessa vikuna. Adam Smári er nýr framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Mikið verður um að vera á Gærunni, en sem dæmi mun Páll Óskar troða upp á Mælifelli á föstudagskvöldinu. "Páll Óskar gerir rosalega mikið fyrir hátíðina. Hann er svo stórt nafn og hentar öllum aldurshópum, " segir Adam Smári. Sniglabandið mætir svo á laugardagskvöldinu eftir tónleikana í Loðskinn og tryllir lýðinn á Mælifelli.
"Það verður 18 ára aldurstakmark inn á hátíðina, en börn mega koma í fylgd með forráðamönnum á tónleikana. Við viljum ekki loka börnin af því við erum að reyna að gera þetta að fjölskylduhátíð að vissu marki. Svo fá 12 ára og yngri frítt inn," bætir Adam við.