Thin Jim and the Castaways á Kaffi Krók
Helgina 3.-5. júlí ætlar hljómsveitin Thin Jim and the Castaways að halda tónleika á Norðurlandi og hefur tónleika ferð sína á Kaffi Krók á Sauðárkróki kl. 22:00. Hljómsveitin ætlar að flytja nýtt efni í blandi við eldra efni, meðal annars af síðustu plötu.
„Hljómsveitin er að vinna að sinni þriðju plötu, nóg er af góðu efni. Fyrsta platan kom út árið 2012 „This is me“ og í nóvember 2014 kom út platan „If I needed you“ í samstarfi við Pál Rósinkranz. Thin Jim hefur sérhæft sig í flutningi á sagnatónlist, amerískri þjóð og kántrý tónlist. Sögur af lífinu og fólkinu. Komdu og deildu með okkur kvöldinu,“ segir í fréttatilkynningu.
Thin Jim and the Castaways skipa þau Margrét Eir, Jökull Jörgensen, David Sigurgeirsson og Diddi Guðnason. Hljómsveitin verður á eftirtöldum stöðum:
- júlí Kaffi Krókur - Sauðárkrók klukkan 22:00
- júlí Bátahúsið Þjóðlagahátíðin á Siglufirði klukkan 17:00
- júlí Menningarhúsið Berg Dalvík klukkan 20:00