Þjálfari óskast fyrir míkróbolta

Unglingaráð Tindastóls í körfu auglýsir eftir áhugasömum einstaklingi, eða einstaklingum, til að sjá um þjálfun míkróboltakrakka í vetur. Leitað er að ábyrgum og áhugasömum einstaklingum í gefandi starf.

 

Míkróboltaæfingar eru fyrir krakka í 1. og 2. bekk. Reiknað er með einni æfingu fyrir hvort kyn í miðri viku og síðan sameiginlegri æfingu á sunnudagsmorgnum.

Ekki er gerð sérstök krafa um körfuboltalegan bakgrunn, því alla faglega aðstoð er hægt að fá hjá reyndari þjálfurum deildarinnar, en aðaláherslan er lögð á skemmtun og fjör.

Nánari upplýsingar gefa Eiríkur Loftsson í unglingaráði, karfa-unglingarad@tindastoll.is, sími 899 6422 og Karl Jónsson, sími 844 2461.

/Tindastóll.is

Fleiri fréttir