Þjálfari sumarsins og Golfskólinn
feykir.is
Skagafjörður
21.05.2013
kl. 11.57
Mark Irving mun verða aðalþjálfari GSS sumarið 2013. Mark er breskur en hefur verið búsettur í Danmörku og víðar á Norðurlöndunum undanfarin ár. Hann er fæddur árið 1955 og hefur undanfarna áratugi öðlast mikla reynslu við golfkennslu. Hann útskrifaðist frá PGA á Englandi sem “fully qualified PGA professional” árið 1974 og hefur sótt fjölda námskeiða frá þeim tíma. Hann starfaði síðast sem “Head Professional” hjá Dragsholm Golf Club í Danmörku.
Mark mun hefja störf um mánaðarmótin maí/júní og verður við kennslu til ágústloka. Hann mun hafa umsjón með barna- og unglingastarfinu ásamt því að sinna almennri golfkennslu fullorðinna.
Golfskólinn hefst formlega miðvikudaginn 5. júní n.k. og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Skráning er hafin í golfskólann. Hægt er að senda tölvupóst á hjortur@fjolnet.is eða hringa í síma 8217041. Golfklúbbur Sauðárkróks, gss.is, segir frá þessu.