Þjálfari Vals með handbotaæfingu í morgun

Það hljóp heldur betur á snærið hjá krökkunum í Sumar-TÍM á Sauðárkróki í morgun þegar Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals og aðstoðarþjálfari landsliðs Íslands í handknattleik mætti í Íþróttahúsið og setti upp skemmtilegar æfingar fyrir þá. Óskar sem er á leið á N1 mótið á Akureyri með eldri strákinn sinn kom við hjá Siggu umsjónarmanni Sumar-TÍM og Ótthari og var drifinn í verkefnið.

Skagafjörður hefur  ekki verið þekktur fyrir handknattleik en Óskar segir að það sé alltaf gaman að kynna íþróttina fyrir krökkum á landsbyggðinni. Hann var mjög ánægður með þá fjölmörgu krakka sem mættu en þeir voru mjög móttækilegir og áhugasamir og sagði hann að varnarhæfileikarnir þeirra væru mjög góðir hjá þeim sem æfðu körfuboltann og gætu átt framtíðina fyrir sér ef þau legðu handboltann fyrir sig.

Fleiri fréttir