Þóra frá Prestsbæ fékk Þorkelsskjöldinn
Á Landsmóti hestamanna um helgina var í fyrsta skiptið veittur nýr verðlaunagripur, hinn svokallaði Þorkelsskjöldur. Það var hin skagfirska gæðingshryssa Þóra frá Prestsbæ sem varð þessa heiðurs aðnjótandi.
Skjöldurinn sem hannaður er og útskorinn af listakonunni Siggu á Grund er farandgripur til heiðurs og minningar um Þorkel Bjarnason fyrrum hrossaræktarráðunaut og er þakklætisvottur fyrir framlag hans til hrossaræktar á Íslandi en gefendur hans eru ýmis félög og samtök tengd hrossarækt í landinu.
Þorkelsskjöldur er farandgripur sem veittur verður á hverju landsmóti hestamanna sem viðurkenning fyrir hæst dæmdu kynbótahryssu mótsins, óháð aldri hryssunnar. Hann verður veittur á hverju landsmóti, í fyrsta sinn nú árið 2011 og í síðasta sinn árið 2030.
Þóra frá Prestsbæ er vel að viðurkenningunni komin en hún hlaut glæsilegar einkunnir um helgina; 8,31 fyrir sköpulag og 9,08 fyrir hæfileika og þar af 10 fyrir skeið. Aðaleinkunn: 8,77.
Eigendur Þóru eru þau Inga og Ingar Jensen hrossaræktendur á nýbýlinu Prestsbæ í Hegranesi en einnig eiga þau hestabúgharðinn Prästgården í Svíþjóð. Þóra hefur verið í umsjón feðganna Þórarins og Eymundar í Saurbæ.