Þóranna Ósk og Pétur Rúnar áfram í landsliðsúrtaki U-15
Þau Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir og Pétur Rúnar Birgisson í Tindastóli eru komin áfram í landsliðsúrtaki U-15 ára landsliðanna í körfuknattleik. Búið er að fækka niður í 17 leikmenn hjá stúlkunum og 18 leikmenn hjá drengjunum. Æfingar voru nú um helgina fyrir sunnan og eftir þær var skorið niður en talsvert stærri æfingahópar voru hjá hvoru kyni.
Alls eru það 12 leikmenn sem komast áfram í lokalandsliðshópinn hjá báðum liðum, en þau taka þátt í móti í Kaupmannahöfn í sumar. Þjálfari stúlknanna er Tómas Holton en drengina þjálfar Snorri Örn Arnaldsson.
Nánari fréttir má sjá HÉR.
/Tindastóll.is