Þórgnýr sigurvegari í Miðnæturíþróttamóti BA og Arnes

Um 100 ungmenni úr sex unglingadeildum SL héðan og þaðan af landinu komu saman í Vatnaskógi 11. - 12. nóvember sl. í Miðnæturíþróttamót Björgunarfélags Akraness og Unglingadeildarinnar Arnes. Á mótinu var keppt í fjölda greina,  svo sem langstökki, kassabílarallýi, körfubolta, bandí, trefilprjóni, fótbolta, sveskjusteinaskyrpi ofl.

 

Mótið fór þannig fram að fyrir þáttöku í hverri grein fékk einstaklingurinn tók þátt eitt stig fyrir sig og eitt stig fyrir deildina sína. Þannig söfnuðu ungmennin stigum, bæði fyrir liðakeppni og einstaklingskeppni.

Eftir harða keppni og mikla útreikninga kom í ljós að Unglingadeildin Arnes frá Akranesi fór með sigur af hólmi í liðakeppninni og fékk titilinn Unglingadeild mótsins.Sigurvegari í einstaklingskeppni í stúlknaflokki var Elísabet Hlín Steinþórsdóttir, Arnesi og í drengjaflokki Þórgnýr Jónsson úr Glaumi frá Hofsósi.

/Landsbjörg.is

Fleiri fréttir