Þórólfur ekki fluttur
Pressan segir frá því í gærkvöld að Þórólfur Gíslason, fjármálafursti Framsóknarflokksins, eins og Pressan kallar hann, sé fluttur í Bryggjuhverfið í Garðabæ. Samkvæmt heimildum Feykis heldur Þórólfur heimili sitt í Skagafirði líkt og áður en rétt er samkvæmt fréttinni að Þórólfur á nú íbúð í Bryggjuhverfi enda þarf hann oft að dvelja í höfuðborginni í viðskiptaerindum.
Þórólfur er kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga en Feyki er ekki kunnugt um að veitt hafi verið staða fjármálafursta hjá Framsóknarflokknum en líklega hefur eigandi Pressunar betri þekkingu á þeim efnum.
"Frétt" Pressunnar má lesa hér