Þórólfur sækir um breytingu á byggingarreit við Ártorg 1
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, hefur fyrir hönd KS sótt um leyfi fyrir breytingu á byggingarreit innan lóðarinnar Ártorg 1.Samkvæmt heimildum Feykis hyggst KS stækka verulega við mjólkursamlagið á næstunni en byggja þarf yfir ostalínu sem keypt var frá Svíþjóð á dögunum og leysa á af eldri ostalínu félagsins. Er gert ráð fyrir að hin nýja viðbygging við samlagið verði í kringum 1000 fermetra og komi sem hrein viðbót við viðbyggingu sem tekin var í notkun fyrir rúmu ári síðan.
Bygginga- og skipulagsnefnd Skagafjarðar samþykkti að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða mögulegar breytingar á byggingarreit lóðarinnar