Þreksporti gert gagntilboð í Borgarflöt 1a
Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi sl. fimmtudag að gera fyrirtækinu Þreksport gagntilboð í húseignina Borgarflöt 1a. Hljóðaði það upp á 48 milljónir króna og hefur verið gengið að því.
Upphaflega bárust fimm tilboð í eignina. Það lægsta hljóðaði upp á 18 milljónir en hæsta boð kom frá IG Ferðum ehf. og hljóðaði það upp á 51 milljón. Fyrirtækið féll síðan frá tilboði sínu og var þá ákveðið að gera næstbjóðanda, Þreksport ehf., áðurnefnt gagntilboð.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Sigurpáll Þ. Aðalsteinsson og Kristinn T. Björgvinsson f.h. óstofnaðs félags: 18.000.000
Kaupfélag Skagfirðinga: 22.500.000
Kiwanisklúbburinn Drangey: 30.000.000
Þreksport ehf.: 46.000.000
IG Ferðir ehf.: 51.000.000