Þremur sagt upp hjá Arion banka á Norðurlandi vestra

Í vikunni var sagt frá því að 57 starfsmönnum Arion banka hefði verið sagt upp störfum, alls 38 í höfuðstöðvum og 19 á öðrum starfsstöðvum. Þrjár þessara uppsagna eru á Norðurlandi vestra þar sem þrjú útibú eru rekin, á Sauðárkróki, Varmahlíð og á Blönduósi.

 

Samkvæmt heimildum blaðsins munu tvær þeirra vera á Króknum og ein uppsögnin á Blönduósi. Í tilkynningu frá bankanum segir að uppsagnirnar nú séu liður í hagræðingarferli sem staðið hefur yfir frá stofnun bankans. Ennfremur segir það erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að bregðast við aðstæðum en ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir af þessu tagi. Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur og að mati bankans er fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi of mikill miðað við umfang kerfisins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka.

Fleiri fréttir