Þrettándagleði á Hvammstanga

Þrettándagleði veður haldin á Hvammstanga sunnudaginn 6. janúar nk. kl. 15:00. Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts kemur fram að lagt verður upp frá Pakkhúsplani KVH á Hvammstanga kl: 15:00. Þá mun álfakóngur, álfadrottning, hirðmeyjar ásamt Grýlu, Leppalúða og jólasveinum leiða gönguna upp í reiðhöllina Þytsheima.

Stoppað verður við sjúkrahúsið og sungnir nokkrir áramótasöngvar. Í Þytsheimum munu jólasveinar, Grýla og Leppalúði syngja og tralla og börnunum boðið á hestbak.

Foreldrar barna í æskulýðsstarfinu bjóða upp á kökur og brauðmeti og veitinganefnd Þyts býður upp á kaffi og kakó.

Vakin er athygli á því að ef veðurútlit verður vont gæti dagskráin breyst, það verður þá auglýst á heimasíðu Þyts. Einnig eru íbúar vinsamlegast beðnir um að skjóta ekki upp flugeldum á meðan gangan fer fram, þar sem hross geta auðveldlega fælst og valdið slysum.

„Vonumst til að sjá sem flesta á hestum og gangandi og eigum góða stund saman,“ segir á heimasíðunni.

Fleiri fréttir