Þrettándagleði Þyts og Grunnskóla Húnaþings vestra 2012

Árleg Þrettándagleði Hestamannafélagsins Þyts og Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin í kvöld, föstudaginn 6. janúar. Farið verður frá Grunnskólanum á Hvammstanga kl. 16:30.

Samkvæmt dagskrá sem birt var á heimasíðu Þyts munu Álfakóngur, álfadrottning, hirðmeyjar ásamt Grýlu, Leppalúða og  jólasveinum leiða gönguna frá Grunnskólanum, farið verður hjá sjúkrahúsinu, Nestúni og að reiðhöllinni Þytsheimum.

Í Þytsheimum munu jólasveinar,Grýla og Leppalúði syngja og tralla með okkur og börnunum boðið á hestbak. Einnig verður boðið upp á söng frá kór Grunnskólans ásamt fleirum og mun Pálína sjá um undirspil. Boðið er upp á kaffi, kakó og meðlæti.

Samkvæmt vefsíðu Björgunarsveitarinnar Húna er svo fyrirhugað að kveikja í brennunni við Höfða kl. 19, ef aðstæður leyfa.

Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að skjóta ekki upp flugeldum á meðan á gleðinni stendur þar sem hross geta auðveldlega fælst og valdið slysum.

 

 

Fleiri fréttir