Þriðja liðið í KS deildinni kynnt til leiks

Meistaradeild Norðurlands kynnir nú til leiks þriðja liðið sem hefur boðað þátttöku sína í KS deildinni í vetur, en það er Hofstorfan / 66°norður. Liðstjóri er Elvar E. Einarsson og með honum eru Bjarni Jónasson, Lilja Pálmadóttir og Gústaf Ásgeir Hinriksson, en sá síðastnefndi kemur inn fyrir Tryggva Björnsson. 

Liðið lenti í öðru sæti í liðakeppninni í fyrra og var einungis fimm stigum frá sigri. „Það er ljóst að liðið hefur fengið mjög öflugan liðsmann, Gústaf Ásgeir, og ættu þau því að vera líkleg til frekari afreka í vetur,“ segir í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands.

Fleiri fréttir