Þrír styrkir af þrjátíu til skagfirskra kvenna
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað við hátíðlega athöfn í Bláa lóninu þann 30. apríl og fengu 33 verkefni styrki að heildarupphæð kr. 35 milljónir. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra afhenti styrkina en í ár bárust 239 umsóknir hvaðanæva af landinu og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum.
Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað síðan 1991, en það var þáverandi félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, sem hafði frumkvæði að styrkveitingunum. Þeir eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.
Einn af þremur hæstu styrkjunum hlaut Hildur Þóra Magnúsdóttir á Ríp í Hegranesi, kr. 2.300.000 vegna verkefnisins „Pure Thyroid- þurrkun og nýting skjaldkirtla úr sláturdýrum“. Inntaka á þurrkuðum skjaldkirtli úr hreinum dýraafurðum virkar vel á vanvirkan skjaldkirtil en hráefnið er afgangsafurð sem fellur til við slátrun. Varan sem um ræðir eru hylki sem innihalda þurrkaða skjaldkirtla úr íslenskum sláturdýrum. Feykir hefur áður fjallað um þetta verkefni sem var annað tveggja sem hlutu í vetur verðlaun í samkeppninni Ræsing í Skagafirði.
Þá hlutu þær Anna Lilja Pétursdóttir í Varmahlíð og Kolbrún María Sæmundsdóttir á Syðstu-Grund í Blönduhlóð hvor um sig 400 þúsund króna styrki til að gera viðskiptaáætlanir. Verkefni Önnu Lilju kallast „Ferðaskrifstofa/ bókunarstofa í Skagafirði“ og verkefni Kolbrúnar Maríu „Litla hestafólkið.“