Þrjár stúlkur valdar fulltrúar Varmahlíðarskóla
Upplestrarhátíð 7. bekkjar Varmahlíðarskóla var haldin hátíðleg sl. þriðjudag að viðstöddum foreldrum lesara. Kynnar hátíðarinnar voru fulltrúar skólans frá fyrra ári, Kolbeinn Maron L. Bjarnason og Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir. Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna í Skagafirði verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra miðvikudaginn 17. mars.
„Nemendur 7. bekkjar lásu tvenns konar texta, laust mál og ljóð að eigin vali og stóðu sig með mikilli prýði. Undanfari hátíðarinnar eru upplestraræfingar og undirbúningur nemenda í að koma fram og lesa upphátt fyrir aðra undir leiðsögn umsjónarkennara. Aðalmarkmið hátíðarinnar að efla færni og áhuga nemenda á upplestri. Á meðan dómarar voru að störfum voru flutt tónlistaratriði af nemendum Tónlistarskólans,“ segir á heimasíðu Varmahlíðarskóla.
Dómarar völdu fjóra nemendur, þrjá aðalmenn og einn til vara sem taka munu þátt í Stóru upplestrarkeppni grunnskólanna í Skagafirði þann 17. mars næstkomandi. Þrjár stúlkur voru valdar fulltrúar skólans í lokakeppnina en það eru þær Bríet Bergdís Stefánsdóttir, Hallgerður Harpa Vetrarrós Þrastardóttir og Svandís Katla Marinósdóttir. Til vara er Telma Sjöfn Sigurðardóttir.
Heimild: Varmahlíarskóli.is