Þrjú skagfirsk börn í topp fimm
Þrjú skagfirsk börn voru meðal fimm efstu í A-úrslitum í barnaflokki á Landsmótinu í dag í brakandi rjómablíðu. Þetta voru þau Guðmar Freyr Magnússon, Ingunn Ingólfsdóttir og Þórdís Inga Pálsdóttir. Það var hins vegar Glódís Rún Sigurðardóttir sem sigraði örugglega á stóðhestinum Kamban frá Húsavík með 8,83.
Börnin voru sannarlega til fyrirmyndar og brekkan fagnaði ótrúlega fallegri reiðmennsku þeirra með miklu lófaklappi.
Hér fyrir neðan eru úrslitin í heild sinni.
A-úrslit barnaflokkur
- 1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 8,83
- 2 Guðmar Freyr Magnússun / Frami frá Íbishóli 8,68
- 3 Ingunn Ingólfsdóttir / Hágangur frá Narfastöðum 8,65
- 4 Viktor Aron Adolfsson / Leikur frá Miðhjáleigu 8,59
- 5 Þórdís Inga Pálsdóttir / Kjarval frá Blönduósi 8,48
- 6 Gyða Helgadóttir / Hermann frá Kúskerpi 8,42
- 7 Eva Dögg Pálsdóttir / Heimir frá Sigmundarstöðum 8,31
- 8 Birta Ingadóttir / Freyr frá Langholti II 0,00