Þúfnapex á Mælifelli

Dægurlagatríóið Þúfnapex sem skipað er þeim Löngumýrarbræðrum Sigvalda og Jakobi ásamt Herídisi Rútsdóttur söngkonu, heldur síðustu tónleika sína fyrir jól á Mælifelli annað kvöld miðvikudaginn 21. des kl. 21:00. Dagskráin samanstendur af lögum sem systkynin Vilhjálmur og Ellý Vilhjálmsbörn gerðu vinsæl, bæði dægurlögum og jólalögum.
Þúfnapex hefur hlotið góðar móttökur á aðventunni  og nú síðast á tónleikum í Hólaneskirkju á Skagaströnd.
Húsið opnar 20:30. Aðgangseyrir kr.1200

Fleiri fréttir