Þungar áhyggjur vegna lækkunar á afurðaverði
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsti á fundi sínum á mánudaginn yfir þungum áhyggjum vegna ákvarðana sláturleyfishafa um 8 –12% lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda í yfirstandandi sláturtíð.
Í bókun byggðaráðs segir: „Rekstur afurðastöðva hefur verið þungur um nokkurt skeið og mikilvægt að rekstrargrundvöllur þeirra sé tryggur. Óásættanlegt er að bændur einir skulu þurfa að taka á sig þær aðgerðir en afleiðingar lækkunar afurðaverðs verða ófyrirsjáanlegar og mikið högg fyrir sveitir landsins. Byggðarráð Húnaþings vestra skorar á alla hlutaðeigandi að leita allra leiða til að tryggja sauðfjárbændum ásættanlegt verð fyrir afurðir sínar og styrkja þannig rekstrargrundvöll sauðfjárbúa,“ segir í bókun Byggðaráðs Húnaþings vestra.