Þytur útbýr dagatal

Hestamannafélagið Þytur er að útbúa dagatal fyrir árið 2012. Félagssvæði Þyts er Húnaþing vestra og formaður þess er Kolbrún Stella Indriðadóttir.

Á heimasíðu hestamannafélagsins kemur fram að félagið hafi verið stofnað árið 1950 og eru félagarnir 282 talsins. Til gamans má geta að félagsbúningurinn er grænn jakki, hvítar buxur, hvít skyrta og svart bindi.

Félagið auglýsir nú eftir fallegum myndum af hestum eða úr starfi félagsins. Þær þurfa að berast fyrir fimmtudaginn 17. september nk.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þyts.

Fleiri fréttir