Til hamingju með safnaverðlaunin
Starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga er fjölþætt og metnaðarfull. Safnið er því sannarlega vel að Íslensku safnaverðlaunum ársins 2016 komið, sem forseti Íslands veitti safninu nýlega.
Umsvif safnsins eru talsverð en á launaskrá safnsins eru um 20 manns þar af um þriðjungur í heilsársstöðum. Auk þeirra starfa 8 manns við veitingastofuna Áskaffi og á annan tug iðnaðar- og handverksmanna starfa í afleiddum störfum vegna safnsins. Fjöldi innlendra og erlendra sérfræðinga og háskólanema auk sjálfboðliða koma síðan með einum eða öðrum hætti að verkefnavinnu á vegum safnsins.
Á safnið koma árlega tugþúsundir gesta og er það mikilvægur áfangastaður fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði, rétt eins og Vesturfarasetrið og Hólastaður.1
Byggðasafnið er því traustur grunnur sem hægt er að byggja á og gefa héraðinu margvísleg tækifæri ef rétt er á spöðum haldið m.a. að miðla enn frekar þekkingu til; skóla, almennings og gesta sem sækja landið heim. Ekki þarf að tíunda þá miklu möguleika sem blöstu við ef aðstaða safnsins og starfsmanna þess yrði betrumbætt og þar með þjónustustigið. Sama á við um öflugar og sérhæfðar rannsóknir safnsins og samstarf við Fornverkaskólann.
Í umræðu um framtíðarskipan safna er vert að hafa í forgrunni hlutverk þeirra sem fyrst og fremst er menningarsögulegt. Hlutverk safnanna er m.ö.o. að varðveita og skrá fróðleik og menningasögulegar minjar héraða og þjóðarinnar. Öflug söfn í Skagafirði sjá sömuleiðis um rannsóknir, skráningu og virka miðlun á menningarverðmætum.
Nýlega samþykkti byggðaráð Skagafjarðar að fara í makaskipti á núverandi
Safnahúsi að Aðalgötu 16b og Aðalgötu 21- 21a sem er Grána auk illa
farinna viðbygginga sem hafði fengist heimild til að rífa.
Samþykkt var að gerður yrði sérstakur samningur um makaskiptin, enda gefur það safnastarfi Byggðasafns Skagafjarðar ákveðin tækifæri til framtíðar að fá til umráða söguríkar byggingar í atvinnusögu héraðsins. Það er eðlilegt og sanngjarnt að slíkur samingur feli í sér að Kaupfélag Skagfirðinga, reiði af hendi a.m.k. 300 milljónir króna, til þess að tryggja að
kosnaðarsöm vistaskipti fræðastarfs og allar nauðsynlegar endurbætur á mjög svo illa förnu húsnæði við Aðalgötu 21 verði ekki frekari uppbyggingu safnsins að Glaumbæ fjötur um fót.
Í þeirri samningagerð sem framundan er varðandi makaskiptin, er mikilvægt að horft sé til framtíðar og að leiðarljósi verði höfð sú reynsla og hugsjón sem býr í skagfirsku safnafólki. Mikilvægt er að breytingarnar verði á forsendum safnastarfsins og á ég ekki von á öðru en
að ríkur skilningur verði á því meðal bakhjarla í héraði.
Brýnt er að nýta hratt og vel tækifærið sem Safnaverðlaun Íslands 2016 gefa Byggðasafni Skagafjarðar til þess að efla starfsemina enn frekar.
Sauðárkróki, 16. júlí 2016
Sigurjón Þórðarson, líffræðingur