Tilkynning frá Skagafjarðarveitum

Skagafjarðarveitur biðla til fólks að láta ekki renna í heita potta meðan kuldakastið varir. Mynd af netinu.
Skagafjarðarveitur biðla til fólks að láta ekki renna í heita potta meðan kuldakastið varir. Mynd af netinu.

Vegna hins mikla kulda sem nú ríkir er afkastageta Skagafjarðarveitna komin að þolmörkum.

Til þess að hægt sé að tryggja afhendingaröryggi til húshitunar biðla Skagafjarðarveitur til fólks að láta ekki renna í heita potta meðan kuldakastið varir. 
Einnig er notendum bent á að stilla ofna svo að þeir séu heitir að ofan og nokkuð kaldir að neðan og varast að byrgja ofna, t.d. með gluggatjöldum og eða öðru.

Búast má við að viðlíka ástand komi upp á næstu mánuðum þegar svo kalt er í veðri og eru notendur beðnir að hafa það í huga.

Skagafjarðarveitur – hitaveita

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir