Tilnefningar til íþróttamanns USVH 2011
USVH óskar eftir ábendingum vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2011, frá íbúum Húnaþings vestra.
Samkvæmt tilkynningu sem birt var í Sjónaukanum er kallað eftir ábendingum um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2011.
Ábendingarnar skulu berast stjórn USVH fyrir 12. desember næstkomandi á tölvupóstfangið á usvh@usvh.is en einnig er hægt að skila þeim inn skriflegum á skrifstofu USVH að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga.