Tímabundnar lokanir á vegum

Bílaklúbbur Skagafjarðar vill vekja athygli á að nokkrir vegir í Skagafirði verða lokaðir tímabundið á morgun, föstudag og á laugardag, vegna keppni í þriðju umferð Íslandsmótsins í rallý. Lokunin er gerð með leyfi Vegagerðar og lögreglu.
Eftirfarandi leiðir verða lokaðar á neðangreindum tímum, dagana 22.-23. júlí.
Föstudagur 22. júlí:
Þverárfjall: lokað kl.18:15 – 18:55 og 19:15 – 19:55
Sauðárkrókshöfn: lokuð kl. 20:00 – 21:30
Laugardagur 23. júlí:
Mælifellsdalur: lokaður kl. 9:20 – 12:00
Vesturdalur: lokaður kl. 11:40 – 13:25
Nafir: lokaðar kl. 14:15 – 15:25