Tindastól spáð 8. sæti

Meistaraflokki karla í Tindastól er spáð 8. sæti í 2. deild samkvæmt spá fyrirliða og þjálfara í deildinni. Þetta kemur fram á fotbolti.net og í kjölfarið var liðið kynnt.

Styrkleikar liðsins eru m.a. varnaleikur liðsins, en á síðunni segir að á góðum degi sé hann mjög þéttur hjá Stólunum og erfitt sé að brjóta þá á bak aftur. Einnig er minnst á veikleika og má þá helst nefna litla breidd í leikmannahópnum, og megi því lítið út af bregða. Svo voru nefndir lykilmenn liðsins, en samkvæmt fotbolti.net eru það þeir Ben J. Griffiths, Fannar Örn Kolbeinsson og Ingvi Hrannar Ómarsson. Kynninguna í heild sinni má lesa hér. 

 

Fleiri fréttir