Tindastóll gerir samstarfssamning við Elche á Spáni
Fjórir leikmenn úr herbúðum spænska liðsins Elche munu leika með Tindastóli í sumar. Tindastóll, sem hefur orðið fyrir nokkurri blóðtöku á síðustu mánuðum, hefur samið við Elche á Spáni um lán á leikmönnum í sumar, en liðið leikur í efstu deild þar í landi. Fulltrúi Tindastóls er staddur á Spáni en þar voru samningar undirritaðir í gær.
Þessir leikmenn sem um ræðir ættu að styrkja leikmannahóp Tindastóls verulega en allir leikmennirnir koma til landsins upp úr miðjum apríl. Þeir hafa spilað með varaliði félagsins og einnig verið á leikskýrslu hjá félaginu í efstu deild.
Leikmennirnir eru Juan Davis og Diego Alejandroo, sem eru báðir miðvallarspilarar, og José Emmanuel og Alex Esteban sem eru sterkir sóknarmenn. Tindastóll mun senda tvo leikmenn erlendis á hverju hausti, sem fá að æfa með félaginu, en þetta er liður í samstarfi félaganna.
Á fimmtudaginn yfirgáfu þrír leikmenn lið Tindastóls og fengu félagaskipti yfir í önnur lið. Arnar Sigurðsson gekk í raðir Gróttu. Arnar Magnús Róbertsson gekk í raðir KH og síðast en ekki síst yfirgaf Árni Arnarson félagið en hann gekk til liðs við HK. „Að missa Árna er afskaplega þungt högg fyrir okkur enda hefur hann leikið stórt hlutverk í liði okkar undanfarin ár. En þegar leikmaður tekur þá ákvörðun að vilja yfirgefa félagið er lítið sem við getum gert,“ segir í frétt á heimasíðu Tindastóls.
M.fl. karla lék tvo leiki um helgina, báða á Akureyri. Á laugardag lék liðið við Magna í Lengjubikarnum og á sunnudag við varalið Þórs en sá leikur var æfingaleikur.
Fréttatilkynning frá Tindastóli