Tindastóll - Haukar á FeykirTV
Það var sannkallaður spennuleikur í Síkinu á Sauðárkróki sl. fimmtudagskvöld þegar Tindastóll og Haukar mættust í 18. umferð Iceland Express deildinni í körfubolta. Jafnt var á tölum allan leikinn og raunar ekki fyrr en í blálokin að úrslit réðust. Með sigrinum tylltu stólarnir sér í 7. sætið með 18 stig en Haukarnir sitja í næstneðsta sæti með 8 stig.
Svo illa vildi til að gestirnir gleymdu búningasettinu sínu heima og léku því í rauðum búningum heimamanna. Einhverjum varð á orði er hann sá Haukaliðið fyrir leik áður en hann sá heimaliðið að nú hefði stjórnin endanlega misst sig í leikmannakaupum, búið að skipta öllu liðinu út.
http://www.youtube.com/watch?v=HA1c6d8dxaU