Tindastóll mætir Dalvík/Reyni í kvöld
Meistaraflokkur karlaliðs Tindastóls tekur á móti Dalvík/Reynir í 3. deildinni. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli.
Tindastóll trónir í efsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Víðir, 27 stig en hefur betri markatölu. Dalvík/Reynir er í áttunda sæti deildarinna með níu stig í tíu leikjum. Tindastólsmenn verða því að teljast sigurstranglegri en fyrri leikur liðanna í sumar lyktaði með þremur mörgum gegn engu, Stólum í vil. Spennandi verður að sjá hvort Stólarnir haldi áfram sigurgöngu sinni en liðið hefur verið að blússandi siglingu upp á síðkastið og unnið 9 leiki í röð.