Tindastóll mætir KR í síðasta heimaleik ársins
Tindastóll mætir KR í síðasta heimaleik ársins í Síkinu í kvöld, fimmtudag 8. desember. Íslands- og bikarmeistaralið KR er í fjórða sæti deildarinnar, en Tindastóll hefur unnið tvo síðustu leiki og er kominn í 10. sætið með fjögur stig.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var liði KR spáð annað hvort fyrsta eða öðru sæti í helstu spám fyrir tímabilið og hafa því ekki staðið undir væntingum í vetur. Þeir erlendu leikmenn sem hafa bæst í liðið hafa ekki náð að fylla þau skörð sem Pavel, Brynjar og Marcus Walker skildu eftir sig.
Hreggviður Magnússon og Finnur Atli Magnússon hafa verið öflugastir í liði KR í vetur og sá síðarnefndi hefur verið að sýna góðan leik upp á síðkastið. Ungu leikmennirnir Kristófer Acox og Martin Hermannsson hafa verið að fá góð tækifæri. Síðan eru í liðinu eldri kempur eins og Ólafur Már og Skarphéðinn Ingason.
KR sigraði Tindastól þegar þeir mættust í Síkinu á síðasta tímabili. Sá leikur var afar jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslitin ekki fyrr en á síðust mínútunum, með lokatölurnar 82 – 85.
Stólarnir sigruðu tvo síðustu leiki sína gegn Val og Haukum og því komnir á sigurbraut. Stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna í íþróttahúsið og styðja strákana sem eiga eflaust hörku baráttu framundan.