Tindastóll mætir Val í Síkinu í kvöld
Tindastóll mætir körfuknattleiksliði Vals á Sauðárkróki kl. 19:15 í kvöld. Hvorug liðin hafa unnið leik það sem af er tímabilinu og því algjör fallslagur sem fer fram í Síkinu í kvöld.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að Stólarnir og Valur mættust síðast þegar bæði liðin voru í 1. deild á tímabilinu 2005-2006 en stólarnir unnu þá báða leikina, útleikinn 89-80 og heimaleikinn 90-74. Til gamans má geta að einn leikmaður í liðinu í dag spilaði í báðum leikjunum, var það Svavar Atli Birgisson.
Valsmenn skiptu út einum af erlendu leikmönnum sínum á dögunum sem hafði ekki staðist undir væntingum og bættist þá bakvörðurinn Garrison Johnsson í hópinn. Nú spila með liðinu fimm erlendir leikmenn.
Allir stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að mæta í Síkið í kvöld og hvetja strákana áfram sem aldrei fyrr svo þeir ná fram sínum fyrsta sigri.
Áfram Tindastóll!