Tindastóll marði Haukana í gærkvöldi
Það var sannkallaður spennuleikur í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi þegar Tindastóll og Haukar mættust í 18. umferð Iceland Express deildinni í körfubolta. Jafnt var á tölum allan leikinn og raunar ekki fyrr en í blálokin að úrslit réðust. Með sigrinum tylltu stólarnir sér í 7. sætið með 18 stig en Haukarnir sitja í næstneðsta sæti með 8 stig.
-Þetta var góður sigur, ekki hátt tempó, eiginlega má segja að við höfum gert nóg til að vinna, sagði Bárður Eyþórsson um leikinn en að hans mati var leikurinn ekki sá besti sem sést hefur hjá liðinu en hann var ánægður með sigurinn. Bárður segir að Haukarnir hafi stjórnað hraðanum að mestu leiti, dregið Stólana niður og hægt á leiknum en liðið hafi náð góðum kafla í lokin og náð að slíta sig frá Haukunum.
Næsti leikur er við KR úti og segir Bárður að sigur hafi náðst á móti þeim tvisvar í vetur og ætla Stólarnir ekkert að fara að breyta því. –Við erum svo sem ekkert farnir að hugsa um þann leik ennþá, ætlum að taka okkur smá „breik“ áður en við förum að einbeita okkur að honum en þetta verður örugglega hörku leikur.
Sjá umfjöllun um leikinn HÉR