Tindastóll tekur á móti Breiðablik í dag
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
19.09.2015
kl. 13.49
Meistaraflokkur Tindastóls tekur á móti Breiðablik í Síkinu, Íþróttahúsinu á Sauðárkróki, kl. 16:30 í dag. Þetta er þriðji leikur Stólanna í Lengjubikarnum sem allir þeir farið fram í þessari viku. Lið Tindastóls er ósigrað en strákarnir léku á móti Skallagrími á Borgarnesi sl. mánudag og FSu í Síkinu á miðvikudag.
„Tilvalið að skella sér á fótboltavöllinn kl: 14.00 og styðja strákana þar, fá sér svo einn kaffibolla og koma svo uppí íþróttahús og hvetja körfuboltaliðið okkar. Áfram Tindastóll!!!“ segir á síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.