Tindastóll tekur á móti Hetti í kvöld

Í kvöld tekur meistaraflokkur Tindastóls í körfu á móti Hetti. Leikurinn hefst kl: 19.15 og verður sýndur í beinni á TindastóllTV.

„Strákarnir spila undir stjórn Kára í kvöld en gengið hefur verið frá ráðningu nýs þjálfara sem er væntanlegur til landsins á laugardaginn kemur. Fjölmennum í Síkið og hvetjum strákana til sigurs,“ segir á síðu Kkd. Tindastóls á Facebook.  

Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir