Tindastóll valtaði yfir ÍR
Stelpurnar í Tindastóli nýttu sér gestrisni ÍR stúlkna í gærkvöldi og gjörsigruðu gestgjafa sína á Hertz vellinum með sex mörkum gegn engu. Það er eflaust kærkomið hjá liðinu að skora svo mikið í einum leik því ekki er hægt að segja að mörkin hafi raðast inn til þessa.
Carolyn Polcari stóð sína plikt með tveimur mörkum á móti ÍR-ingum.
Stólastelpur komu ákveðnar til leiks og strax á 3. mínútu náði Carolyn Polcari að skora fyrsta markið fyrir gestina. ÍR stúlkur áttu sín færi og gátu vel sett boltann í netið en Bryndís markvörður Stólanna bjargaði tvívegis með tilþrifum. Gestirnir voru ávallt sterkari á boltann og heilt yfir, mikið betri í leiknum, að sögn Atla Víðis Hjartarsonar bílstjóra og sérlegs aðstoðarmanns liðsins. –Stelpurnar náðu að spila vel. Vörn ÍR var hæg enda komu flest mörkin eftir stungusendingar, segir Atli. Þær stöllur Carolyn Polcari og Leslie Briggs skiptu markasúpunni á milli sín, Carolyn með tvö mörk en Leslie fjögur. Guðjón Örn Jóhannsson þjálfari var í skýjunum með bæði úrslitin og liðið, þegar Feykir náði sambandi við hann í gærkvöldi.
Tindastóll situr sem fyrr í sjötta sæti en hefur bætt á sig stigum og markahlutfallið er komið upp í eitt í plús og blandar sér þar með í baráttu þeirra liða sem vilja fylgja ÍA og Fylki upp stigatöfluna.
Stöðu liðanna í A-riðli 1. deildar kvennaboltans má sjá HÉR.