Tindastóll – Völsungur í kvöld

Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls eiga heimaleik á mánudagskvöldið en þá taka þær á móti Völsungi frá Húsavík. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Sauðárkróksvelli og eru allir hvattir til að koma á völlinn og styðja við bakið á stelpunum.

Tindastóll situr nú í 6. sæti deildarinnar með 4 stig eftir sex leiki, hefur unnið einn leik og gert eitt jafntefli. Völsungur hefur hins vegar unnið þrjá leiki en tapað tveimur og situr nú sæti ofar en Tindastóll með 9 stig. Síðast þegar þessi lið áttust við á Húsavík einkenndist leikurinn af mikilli baráttu beggja liða sem fór þó á þann veg að Völsungur sigraði 3-0 með mörkum sem komu seint í leiknum.

Búast má við því að leikurinn í kvöld verði skemmtilegur og spennandi og segir Bjarki Már þjálfari að klárlega komi liðið til með að selja sig dýrt. -Við getum unnið öll liðin í þessum riðli ef við spilum eins og við getum, sagði Bjarki eftir síðasta leik.

Fleiri fréttir