Tindastóll/Hvöt - Árborg á Blönduósvelli
í kvöld kl:20:00 er leikur hjá Meistaraflokknum og er þessi heimaleikur okkar spilaður á Blönduósvelli. Andstæðingarnir eru Árborg.
Tindastóll/Hvöt er í 9.sæti með 7.stig en Árborg er í neðsta sæti með 4.Stig. Þessi leikur er því gríðarlega mikilvægur fyrir okkar menn og hvetjum við alla til að koma og styðja strákana.