Tindastóll/Hvöt einu stigi frá 1. deild
Mikilvægt stig vantar í sarpinn hjá liði Tindastóls/Hvatar til að komast upp um deild í toppbaráttunni í 2. deildinni þegar einn leikur er eftir. Það eru tvö lið sem færast upp í fyrstu deildina, Höttur Egilsstöðum sem trónir nú á toppnum og Tindastóll/Hvöt, Njarðvík eða Afturelding.
Tindastóli/Hvöt nægir jafntefli en annað hvort hinna liðanna geta náð þeim að stigum ef okkar lið tapar og fer þá upp á betra markahlutfalli. Það er því ljóst að þörf er á öllum þeim stuðningi sem áhorfendur geta veitt á morgun laugardag þegar okkar menn fá Völsung í heimsókn. Leikurinn verður á Sauðárkróksvelli og hefst klukkan 14:00.
ALLIR Á VÖLLINN!