Tindastóll/Hvöt endaði í 2.sæti Lengjubikarsins

Úrslitaleikur B-deildar lengjbikarins fór fram í gær og varð Tindastóll/Hvöt að lúta í lægra haldi 4-2 fyrir Aftureldingu, leikurinn fór fram á Akranesi. Hilmar Þór Kárason skoraði seinna mark norðanmanna en fyrra markið var sjálfsmark.

Á heimasíðu Tindastóls segir að okkar menn hafi byrjað skelfilega í leiknum og eftir aðeins 8 mín var staðan orðin 2-0 fyrir Aftureldingu og á brattan að sækja. Tindastóll/Hvöt vann sig síðan inn í leikinn og var sterkari aðilin megnið af fyrri hálfleik en erfiðlega gékk að skapa sér færi. Afturelding fékk síðan mjög ódýra vítaspyrnu fyrir lok fyrri hálfleiks og breytti stöðunni í 3-0.

Tinadstóll/Hvöt minkaði munin á 46. mín en þar sáu Aftureldingar menn um að setja boltann í eigið net. Leikurinn var nokkuð jafn eftir þetta og skiptust liðin á að sækja. Það var síðan á 68. mín sem Afturelding skorar eftir horn og staðan orðin 4-1.

Siggi þjálfari gerði nokkrar breytingar á liðinu eftir þetta og áttu þeir leikmenn góðar innkomur. Það var einmitt varamaðurinn Hilmar Þór Kárason sem minnkaði munin á 89. mín.  Lokatölur leiksins 4-2 og Afturelding,  bikar og 150 þús. krónum ríkari.

Þrátt fyrir tapið var margt mjög jákvætt í leik liðsins. Liðið gafst ekki upp þrátt fyrir herfilega byrjun og héldu menn áfram að sækja.

Hægt er að sjá mörk og svipmyndir úr leiknum sem Stefán Arnar tók HÉR

Fleiri fréttir