Tindastóll/Hvöt laut í gras fyrir Hetti
Tindastóll/Hvöt fór á Egilsstaði á laugardaginn og spilaði þar fyrsta leik sumarsins. Lokatölur leiksins urðu 1-0 fyrir Hött.Leikurinn fór fram á gervigrasvellinum í Fellabæ.
Skrifað er um leikinn á heimasíðu Tindastóls; "Leikurinn fór rólega á stað, en Hattarmenn þó ívið sterkari aðilinn, án þess þó að skapa sér teljandi marktækifæri. Tindastóll/Hvöt komst svo meira og meira inn í leikinn, en tókst ekki heldur að skapa sér hrein marktækifæri. Þessi leikur var frekar harður og eðlilega svolítill vorbragur á leik liðanna. Hattarmenn áttu nokkur langskot í þessum leik sem ógnuðu marki okkar manna ekki mikið. Við áttum hinsvegar nokkrar vel útfærðar sóknir sem við náðum ekki að binda endahnútinn á.
Nokkrar breytingar voru gerðar á liði Tindastóls/Hvatar frá síðasta leik. Fannar Örn Kolbeinsson kom inní liðið fyrir Arnar Skúla sem var að taka út leikbann. Óskar Vignis leysti síðan stöðu Ingva Hrannars sem er meiddur frá síðasta leik. (Ástæðu meiðslanna er hægt að sjá hér, þegar 2:45 eru liðnar) Árni Einar kom aftur inn í liðið eftir meiðsli og bar fyrirliðabandið í leiknum og stóð fyrir sínu.
Heilt yfir þá var leikur okkar manna ágætur. Við gáfum lítil færi á okkur en sóknarleikurinn gekk misjafnlega. Oft á tíðum var of langt bil á milli sóknar og miðju og stuðningur við fremstu menn þar af leiðandi ekki nægur.
Þegar rúmar 10 mínútur voru eftir að leiknum fékk leikmaður Hattar sendingu innfyrir vörn okkar og skoraði sigurmark leiksins. Líklega hefur drengurinn verið rangstæður og því markið ólöglegt en það má sjá á myndbandinu. Hinn ungi aðstoðardómari hefði átt að flagga en hann gerði það ekki. Á samskiptasíðunni Facebook ræða Hattarmenn um þetta atvik og þakka fyrir að vera með liðsmann Hattar á línunni.
Hilmar Kárason átti skalla í þverslá í uppbótartíma en inn vildi boltinn ekki.
Byrjunarlið Tindastóls/Hvatar: GK: Gísli Eyland - DR: Fannar Örn - DC: Bjarki Már og Milan - DL: Óskar Vignis - DM Árni Einar og Donni Jón - AM: Dejan - FR: Árni Arnars - FL: Atli Arnars - S: Kolbeinn Kárason
Sub: Arnar Magnús, Hallgrímur, Benni, Hilmar, Böddi
Næsti leikur er heimaleikur gegn Fjarðabyggð, laugardaginn 21.Maí. Hann verður spilaður á Blönduósi og byrjar leikurinn kl: 14:00. Við hvetjum alla til þess að skreppa yfir fjallið í laugardagsbíltúr og styðja strákana okkar nú eða bara að skreppa út á völl og leggja sitt að mörkum."