Tindastóll/Hvöt styrkti stöðu sína á toppnum.
Þetta var býsna mikilvægur leikur þar sem síðasti leikur tapaðist á móti Hamri. Ef liðið ætlaði sér sigur í riðlinum varð þessi leikur að vinnast.
Nokkrir mikilvægir leikmenn voru fjarri góðu gamni en hópurinn er stór og ekkert vandamál var að stilla upp liði. Það voru líka ungir leikmenn sem skoruðu bæði mörk okkar en Hilmar Kárason sem hefur verið iðinn við kolann í undanförnum leikjum skoraði fyrra markið og Gunnar Stefán Pétursson skoraði svo sigurmarkið.
Byrjunarlið okkar var þannig skipað: Gísli Eyland, Arnar Skúli, Bjarki, Böddi, Hallgrímur, Árni Einar, Donni, Atli, Ingvi Hrannar, Arnar Sig og Hilmar Kára.
Lið Tindastóls var betra liðið í þessum leik og sigurinn verðskuldaður.
Nú er einn leikur eftir í þessu móti og er hann á móti sterku liði KV. Sá leikur verður á KR velli nk. sunnudag kl. 16:00.