Tindastólsgarpar á "Opna meistaramótinu í garpasundi" - IMOC 2011
Íslandsmót garpa fór fram um helgina 6.-7. maí í Ásvallalaug í Hafnarfirði og kepptu átta sundmenn að þessu sinni frá sunddeild Tindastóls. Það voru þau Valgeir S. Kárason, Hans Birgir Friðriksson, Soffía Káradóttir, Helga Þórðardóttir, Gunnar Bjarnason, Jóna Guðný Káradóttir, Sigurjón Þórðarson og Sarah Jane E Caird.
Árangur var góður og lenti félagið í fjórða sæti í heildarstigakeppninni á eftir fjölmennum liðum SH, Ægis og UMSK. Samtals náði liðið að vinna 16 gull, 18 silfur og 2 brons.
Lið Tindastóls setti 4 Íslandsmet: Hans Birgir Friðriksson, 50 m skrið í flokki 55-59 ára á tímanum 29,9, Valgeir S. Kárason í flokki 60-64 ára, 800 m skrið á tímanum 13:02,89
400 skrið á tímanum 6:22,75 og 200 m skrið á tímanum 2:53,75. Boðsveitir náðu 2. sæti í tveimur greinum í flokki 200 - 240.
/Tindastóll.is