Tindastólsmenn heillum horfnir

Í gærkvöldi áttust við Fjölnir og Tindastóll í Iceland Express deldinni í körfuknattleik og var leikið syðra. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur báðum liðum, með sigri hefðu Stólarnir glætt möguleika sína á sæti í úrslitakeppninni en ef leikurinn tapaðist væru þeir komnir í bullandi baráttu fyrir sæti sínu í deildinni. Í stuttu máli þá höfðu Fjölnismenn yfirhöndina nánast allan leikinn og sigruðu að lokum 88-83.

Heimamenn í Fjölni fóru vel af stað með Brandon Brown í miklum troðsluham. Þeir komust í 8-2 en Stólarnir komust vel inn í leikinn og náðu forystu skömmu fyrir lok fyrsta leikhluta en Fjölnismenn komu til baka og voru þremur stigum yfir, 24-21, þegar annar leikhluti hófst. Stólarnir jöfnuðu með þristi en lið heimamanna náðu aftur yfirhöndinni og leiddi mest allan annan leikhluta með 6-8 stiga mun. Fain lét það alveg vera að skora fyrir Stólana í fyrri hálfleik og það verður að teljast galli á þessum skemmtilega leikmanni að það vill oft lítið ganga hjá honum framan af leikjum. Staðan í hálfleik 41-35.

Stólarnir skiptu í svæðisvörn í síðari hálfleik og komu Fjölnismönnum í opna skjöldu og náðu að komast yfir þegar 2-3 mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Fain átti loks góða syrpu þegar hann setti 7 stig í röð og jafnaði leikinn í 50-50 og síðan var allt í járnum. Það var hinsvegar skarð fyrir skildi þegar fyrirliði Tindastóls, Helgi Rafn, kvaddi samkunduna með heilar 6 villur á bakinu og Fjölnir endaði leikhlutann vel og hafði yfir 63-57.

Stólunum gekk ágætlega að loka á Brown í síðari hálfleik en það var verra að við það opnuðust flóðgáttir hjá 3ja stiga skyttum heimamanna sem röðuðu niður körfum. Fjórði leikhluti var erfiður gestunum sem reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn en heimamenn gáfu engin grið og hleyptu Stólunum ekki nálægt sér. Munurinn sem fyrr yfirleitt 5-8 stig en undir lokin orðinn 9 stig, staðan 88-79, en Stólarnir höfðu sigrað heimaleik sinn gegn Fjölni með 10 stiga mun og mikilvægt að verja þá stöðu í lokin. Og það hafðist þegar besti maður Stólanna, Sean Cunningham, setti niður 4 víti í blálokin og lokatölur því 88-83.

Eftir þetta tap er Tindastóll líkt og fyrir leik í 9. sæti deildarinnar með jafn 14 stig líkt og Fjölnir en Stólarnir standa betur að vígi í innbyrðisviðureignum liðanna. Þar fyrir neðan er lið Hamars með 12 stig en þar standa Stólarnir einnig betur í innbyrðis viðureignum liðanna. Það þarf því mikið að ganga á í síðustu tveimur umferðunum til að Stólarnir féllu niður um deild.

Í næstu umferð fá Stólarnir Keflvíkinga í heimsókn og verður leikurinn næstkomandi mánudag kl. 19:15. Fimmtudaginn þar á eftir fer lokaumferðin fram og þá sækja Tindastólsmenn Njarðvíkinga heim. Í viðtali við Körfuna.is er Svabbi Bigga Hreinsa þó fjallbrattur og reiknar með að leggja Suðurnesjarisana báða í síðustu leikjunum. Stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna í Síkið á mánudagskvöld og styðja við bakið á Stólunum!

Stig Tindastóls: Cunningham 25/10 fráköst, Kitanovic 16, Fain 13/12 fráköst, Svabbi 9, Helgi Rafn 8/10 fráköst, Rikki 8 og Helgi Margeirs 4.

Fleiri fréttir