Tindastólsmenn komnir upp í úrsvalsdeildina í körfubolta
Það varð ljóst eftir að lið Hattar á Egilsstöðum sigraði Þór Akureyri í kvöld í 1. deild karla í körfubolta að Tindastólsmenn hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni í haust, burtséð frá því hvernig síðustu tveir leikir liðsins fara.
Leikur Hattar og Þórs var æsispennandi í fjórða fjórðungi en heimamenn voru sterkari framan af leik. Þegar um mínúta var eftir var staðan 68-65 fyrir Hött en Þórsarar virtust, líkt og svo oft áður í vetur, ætla að sigla á seiglunni til sigurs því þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka voru þeir komnir í 68-70. Þá steig upp Andrés Kristleifsson og setti niður súrsætan þrist og tryggði Hetti sigur, 71-70.
Hreinn Birgisson lék með liði Hattar í kvöld og gerði reyndar aðeins eitt stig en hirti tíu rebba.
Feykir óskar Tindastólsmönnum um allan heim til hamingju með sæti í úrvalsdeild.