Tindstóll fékk heimaleik gegn ÍR
Í dag var dregið í undanúrslit Powerade-bikarsins í körfubolta og eins og sjálfsagt flestir vita þá var karlalið Tindastóls í hattinum og gat mætt liði Íslandsmeistara Grindavíkur, Þórsurum úr Þorlákshöfn eða ÍR-ingum úr Breiðholtinu.
Drátturinn fór fram í húsakynnum Vífilfells og var það Gunnar Lár, vörumerkjastjóri Powerade, sem sá um að draga undir styrkri stjórn Hannesar Jónssonar, formanns KKÍ. Gunnari tókst vel upp við dráttinn og fengu Tindastólsmenn heimaleik gegn ÍR.
Lið ÍR hefur unnið 3 af 13 leikjum sínum í Dominos-deildinni en unnu afar öruggan sigur á Keflavík B í 8 liða úrslitum Powerade-bikarsins á dögunum á meðan Stólarnir lentu í ströggli með Fjölni. Þrátt fyrir að lið Tindastóls spili í 1. deildinni á liðið ágæta möguleika á að velgja ÍR-ingum undir uggum en leikið verður í Síkinu annaðhvort 2. eða 3. febrúar.
Það er sennilega óþarfi að benda á þá staðreynd að með sigri tryggja Stólarnir sér farseðilinn í úrslitaleikinn í Laugardalshöll.